Ástþór fæddist í Reykjavík 4. ágúst 1953. Eftir landspróf hóf Ástþór nám í Verslunarskóla Íslands en fór síðan
til Bretlands í nám við Medway College of Art and Design og lauk prófi
í auglýsingaljósmyndun og markaðsfræðum. Hann sótti síðan fjölda
námskeiða bæði heima og erlendis í stjórnun og rekstri fyrirtækja.
Ástþór var upphafsmaður að stofnun Eurocard á Íslandi árið 1979 en það
var fyrsta kreditkortafyrirtæki landsins. Ástþór stofnaði einnig og rak
um árabil ljósmyndagerð og póstverslunarfyrirtæki með útibúum í
Færeyjum og Danmörku.
Árið 1983 flutti Ástþór til Danmerkur og síðan
til Bretlands þar sem hann gerðist frumkvöðull í þróun tölvutækni fyrir
gagnvirk upplýsinga- og verslunarkerfi. Hann kom einnig að flugrekstri
um árabil og er með yfir 2000 flugtíma mest við stjórn á litlum
einkaþotum.
Ástþór var upphafsmaður að stofnun Friðar 2000 www.peace2000.org með
þátttöku meira en 100 erlendra friðarsamtaka og yfir 1000 einstaklinga
árið 1995. Ástþór hefur hlotið tvenn mannúðarverðlaun, Gandhi
verðlaunin og Heilaga Gullkrossinn frá Grísku rétttrúnaðarkirkjunni, en
það var UNESCO í Grikklandi sem tilnefndi Ástþór til verðlaunanna.
Ástþór Magnússon stofnaði samtökin Frið 2000 árið 1995 eftir að hafa
orðið fyrir andlegri hugljómun árið 1994, þá liðlega fertugur að aldri.
Það má með sanni segja að 'enginn er spámaður í sínu heimlandi' um
Ástþór Magnússon, því hann varð fyrir miklu mótlæti á Íslandi eftir að
samtökin hófu starfsemi og byrjuðu að kynna hugsjónina um Ísland sem
fyrirmynd annarra landa í friðarmálum.
Hugmyndir Ástþórs áttu á þeim tíma ekki upp á pallborðið hjá æðstu
stjórnendum þjóðarinnar sem vildu kveða í kútinn óþægileg mótmæli
Ástþórs og Friðar 2000 gegn undirlægjuhætti þeirra við ógnvænlega
stríðsæsingastefnu Bandaríkjanna. Ástþór hefur ítrekað verið sannspár
um hættuna af þessari stefnu og spáði m.a. fyrir um hryðjuverkin 11.
September 2001 í sjónvarpsviðtali á Stöð2 mörgum mánuðum áður en það
gerðist.
Þrátt fyrir að hafa verið nær lagður í einelti með rógburði í
fjölmiðlum, fjáröflunarstarfi lokað með ólögmætum hætti, handtekinn og
settur í fangelsi fyrir það eitt að vara við augljósri hættu á
hryðjuverkum gegn Íslenskum flugfélögum ef þau yrðu notuð til
vopnaflutninga til Mið Austurlanda eins ríkisstjórnin ætlaði að gera
þar til Ástþór flautaði á málið, hefur Ástþór verið trúr sinni hugsjón
og haldið ótrauður áfram.
Ástþór kynnti hugmyndafræði sína í forsetaframboði 1996 og í bókinni
"Virkjum Bessastaði" sem dreift var á öll heimili landsmanna. Ástþór
hefur lýst því yfir að hann muni áfram bjóða sig fram til Forseta
Íslands þegar tækifæri bjóðast til og stuðningsmenn hans segja engum
manni betur treystandi til að leiða embætti Forseta Íslands inn í nýja
tíma með áherslu á friðarmál en Ástþóri Magnússyni. Að hann sé búinn að
sýna það og sanna að hann verður ekki 'keyptur' eða yfirbugaður hvað
sem á dynur. Það sé einmitt slíkann mann sem þurfi til að takast á við
það erfiða verkefni að kynna leiðtogum heims hina einstöku sögu okkar
Íslendinga og hverning okkur hefur tekist að búa sem vopnlaus þjóð við
frið lengur en nokkurt annað ríki á jörðinni grunvallað á okkar gamla
Alþingi sem nú er talið elsta lýðræðisstofnun heims. Hugmyndir Ástþórs
sem byggja á þessari einstöku sögu Íslands og uppbyggingu á alþjóðlegum
friðarsveitum eru áhugavert innlegg inn í alþjóðamálin sem tími er
kominn til að taka alvarlega.
Fjölskylda
Hjónin Ástþór Magnússon Wium og Natalía Wium gengu í hjónaband í Þingvallarkirkju þann 11 febrúar 2004. Þau kynntust fyrst á styrktartónleikum fyrir Mæðrastyrksnefnd í Reykjavík þann þriðja í jólum 2001. Ástþór var hér í jólafríi að heimsækja fjölskyldu sína en hann bjó þá í London. Natalía flutti til Íslands í janúar 2000 er hún giftist fyrri manni sínum Jóni Benediktssyni héraðslækni. Natalía fæddist í Rússlandi 31. janúar 1975 og nam lögfræði við háskólann í St.Pétursborg. Ástþór á eina dóttur frá fyrra hjónabandi.
Árangur af starfi Ástþórs
Smelltu hér til að lesa um þann árangur sem þegar hefur náðst.
Hafa samband við Ástþór
Smelltu hér til að hafasamband við Ástþór Magnússon
Hjónin Ástþór og Natalía Wium:
