1995 – Stofnar samtökin Friður 2000. Flýgur með hjálpargögn og jólapakka með kveðjum frá Íslenskum börnum fórnarlamba Chernobyl og stríðhrjáðra barna í Sarajevo. Hugmyndin verður öðrum hvatning og og bílalestir með hjálpargögn og slíka jólapakka berast næstu árin til Chernobyl og á stríðshrjáð svæði með bílalestum frá ýmsum stöðum.
1996 – Gefur út bókina “Virkjum Bessastaði” dreift á öll heimili landsins. Skorar á frambjóðendur að taka upp friðarmálin. Þegar enginn þeirra bregst við áskoruninni lýsir Ástþór sjálfur yfir framboði og notar síðan beinar sjónvarpsútsendingar til að fá Ólaf Ragnar Grímsson til að gefa kjósendum loforð um að beita embættinu í friðarmálum verði hann kjörinn. Forsetinn sveik kosningaloforðið í 12 ár. Í aðdraganda kosninga tók Ástþór við Gandhi mannúðarverðlaunum og afhenti Clinton bandaríkjaforseta eintak af Virkjum Bessastaði.
1997 – Skorar á heimsbyggðina frá Baghdad að mótmæla fyrirhugaðri árás á Írak. Ástþóri tókst að koma skilaboðunum í gegnum CNN, ABC, CBS og nær alla heimspressuna í 5 daga samfleitt og margsinnis sem aðalfrétt og forsíðufrétt í erlendum stórblöðum! 1998 er Ástþór sæmdur Heilögum Krossi Grísku Réttrúnaðarkirkunnar að útnefningu UNESCO eftir að Clinton hætti við innrásina í kjölfar mikilla mótmæla.
2002 – Ráðamenn vilja að Icelandair flytji vopn og hermenn fyrir Bush í Írakstríð. Ástþór sendir út viðvörun um hættulegt óðagot sem geti dregið Íslensk flugfélög inní hryðjuverkastríð. Þá fangelsaður en sýknaður af Hæstarétti. Hætt við að nota Icelandair flugvélar til vopnaflutninga.
2006 – Vilhjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri stofnar Friðarstofnun Reykjavíkur. (Ástþór kynnti slíka hugmynd fyrir borgarstjóra árið 1995)
2007 – Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar undirritar samning um stofnun alþjóðlegs háskóla á Keflavíkurflugvelli er starfi að friðarmálum, kenni alþjóða- og öryggismál. (Ástþór kynnti hugmyndir að friðarháskóla á Íslandi árið 1997 eftir að fá stuðning við hugmyndina hjá fjölda fræðimanna erlendis, síðan í forsetaframboði 2004 og 2006 sendi bæjarstjóranum tillögu að slíkri starfsemi á Keflavíkurflugvelli).
2007 - Yogo Ono kom frá New York með friðarsúlu til Viðey (Ástþór kynnti Ísland sem land friðar á fjölda fyrirlestra í New York, Tokyo og víðar m.a. hjá Sameinuðu Þjóðunum í New York og í hjá friðarháskóla S.Þ. Costa Rica yfir 9 ára tímabil 1995-2004).
2008 – Stjórnvöld samþykkja beiðni Palestínumanna um friðarfund á Íslandi og Forseti Íslands handsalar samkomulagið á Bessastöðum. Ástþór kynnti þessar hugmyndir í Palestínu og Ísrael árið 2001 og aftur fyrir nánum samstarfsmönnum Yasser Arafat árið 2004.