Sorglegt var að horfa uppá í ásbyrjun 2008 hvernig forseti Íslands og stuðningsmenn hans misnotuðu fjölmiðlaveldi sitt til að tryggja forsetanum endurkjör í fjórða kjörtímabilið án kosninga. Hér er úrdráttur úr bréfi mínu 24 janúar 2008 til dómsmálaráðuneytisins þar sem atburðarrásinni var lýst:
Heilbrigt lýðræði getur ekki þrifist nema með reglubundnum kosningum á jafnréttisgrundvelli. Aðdragandi kosninga er mikilvægur og dýrmætur tími fyrir þjóð og valdhafa að skiptast á skoðunum í opnum og frjálsum umræðum. Fjórða valdið fjölmiðlarnir gegna þar mikilvægu hlutverki. Þeir sem ráða fjölmiðlum þjóðarinnar þurfa að axla þá ábyrgð að misnota ekki valdið til að hygla einum fram yfir aðra eins og því miður gerðist með svo afgerandi hætti í Íslensku forsetakosningunum árið 2004 að Dr. Dietrich Fisher líkir þessu í fyrirlestrum sínum við það sem gerðist undir einræði Slobodan Milosevic í Júgóslavíu.
Eins og gerðist árin 2000 og 2004, er í 3ja sinn árið 2008 hafinn öfgafullur áróður gegn kosningum í fjölmiðlum stuðningsmanna sitjandi forseta Ólafs Ragnars Grímssonar:
01.01.08 – Forsetinn Ó.R.G. tilkynnir að hann sækist eftir endurkjöri eða sjálfkjöri.
02.01.08 – Tímaritinu Mannlíf með forsíðu tileinkaðri Ólafi Ragnari Grímssyni dreift og stillt upp við alla kassa í nær öllum verslunum landsins, matvöruverslunum, söluturnum og benzínstöðvum svo ásýnd forsetans blasi við þjóðinni í fleiri vikur.
03.01.08 – Stöð2 “Ástþór aftur í framboð” og þar fullyrt að ég ætli í forsetaframboð án þess að ég hafi rætt slíkt framboð við nokkurn mann síðastliðin ár.
04.01.08 – Stöð2 aðalfrétt kvöldins “Misnotar lýðræðið” og á skjánum oddviti yfirkjörstjórnar Reykjavíkur Norður með þær fullyrðingar að ég hafi beitt blekkingum við prentun meðmælendalista í forsetakosningum árið 2004. Á visir.is bætt enn um betur og sagt “nauðgun á lýðræðinu”. Fréttin er í raun áfellisdómur yfir kjörstjórnum og dómsmálaráðuneytinu sem hafa þá vísvitandi samþykkt ógilda meðmælendalista.
05.01.08 – Stöð2 fyrsta frétt “Mótframboð myndi kosta 170 milljónir” með myndum af mér á kjörstað um leið og hamrað er á stórýktum kostnaði við forsetakosningar. Ítrekaðar fullyrðingar oddvita yfirkjörstjórnar að mótframboð sé misnotkun á lýðræðinu, lög séu úrelt og við núverandi aðstæður eigi í raun enginn erindi í framboð gegn forsetanum í okkar litla lýðræði með þá 1500-3000 meðmælendur sem núverandi lög kveða á um.
Áhugavert að Stöð2 sá ekki ástæðu að upplýsa skýra frá kæru gegn ummælum oddvitans eftir hafa misnotað fréttatíma sína gegn mér með svo grófum hætti sem raun ber vitni að því að virðist í þeim tilgangi að hræða gegn kosningum og mótframboðum gegn sínum manni sem nú ráðgerir áhyggjulaust sjálfkjör í fjórða kjörtímabilið.
Atburðarrásin hefur átt sér nokkurn aðdraganda. Lúmskt bros stjórnmálafræðingsins sem skilur betur en allir hvernig má spila á lýðræðið og illa upplýstan almúga blasir nú við mér í hvert sinn sem keypt er í matinn eða bensín á bílinn. Frábært flug forsetans, en ég get ekki neitað því hvað þetta minnir á ferð mína til Baghdad um árið og glansmyndir þess forseta sem einnig taldi kosningar óþarfar.